Löngu tímabært þing - stórfengleg afurð frelsisins!

Enn vinnur kapítalisminn glæsta sigra!

Varðhundar frelsisins taka því fagnandi að stúlkur skuli taka sig saman og framleiða klámefni handa okkur karlmönnunum. Það er einfaldlega þeirra val! Kjósi þær að framleiða klámefni, selja líkama sinn eða leggja land undir fót í mansali og kynlífstúrisma er það ekki á ábyrgð neinna annarra en þeirra sjálfra. Þetta er þeirra fyrsti valkostur til atvinnu. Mundu ungar stúlkur ekki taka því fagnandi ef hingað til lands mættu stæltir folar sem létu vel að hvor öðrum þeim til afþreyingar?

Allt er falt í heimi frelsisins!

Varðhundar frelsisins geta ekki annað en gelt af ánægju yfir þessum hvalreka á Íslandsstrendur. Alltof lengi hafa forpúkaðar rauðsokkur kúgað land og lýð með yfirgengilegum skoðunum sínum um  "kvenfrelsi" og hlutverk kvenna í nútímasamfélagi, að ógleymdu hvimleiðu súluofnæmi þeirra. Þessar greyið konur eru náttúrulega gjörsamlega GALNAR! Hvernig getur kvenfrelsi eiginlega falist í því að standa gegn framþróun þessarar elstu atvinnugreinar veraldarsögunnar, sem konur hafa svo lystilega lagt fyrir sig og náð fullkomnum tökum á? Það er varðhundunum í það minnsta hulin ráðgáta hvernig sósíalískt bann við iðjunni auki veg kvenna - miklu fremur má búast við því að bannið myndi skerða tekjur kynsins svo um munar og hamla þannig hagvexti austur-evrópskra þjóða.

Að öðrum kosti vilja varðhundarnir ítreka ánægju sína yfir þessari viðbót við flóru íslensks atvinnulífs og fagna því aukna frjálsræði sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde hefur staðið fyrir á undanförnum árum í atvinnumálum. Er hér um að ræða afar skapandi og frjóa atvinnugrein sem mun vafalaust dafna vel og lengi á frjálsum markaði. Húrra fyrir Haarde!


mbl.is Klámþing verður haldið hér á landi í næsta mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband