Níðst á þeim efnuðu

Varðhundar frelsisins hafa lengið kunnað að meta framlag Parísar Hilton til hinna eðlu lista. Sjónvarpsþættir hennar höfðu mikið skemmtanagildi og koma hennar í heim tónlistarinnar var sem ferskur andblær inn í listgreinina. Einnig hefur útgáfa hennar á heimilismyndböndum vakið sérstaka lukku hundanna. Tounge

Telja varðhundarnir það dagljóst að öfund á ríkidæmi hinnar glæsilegu Hilton hefur rekið þennan skúnk áfram í að hrella hana. Hvenær ætla sósíalistar að læra að láta þá ríku, sem hafa stritað alla ævi við auðsöfnun, í friði og hætta að öfundast út í þá?

Enn slá vinstrimenn vindhögg! 


mbl.is Ölvaður gestur eyðilagði afmæli Parísar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband