Moggabloggið er fallið í vök

Enn einu sinni finna Varðhundar frelsisins sig knúna til að ávíta Moggabloggið fyrir að falsa aðsóknartölur.

Á listanum yfir vinsælustu blogg sitja Varðhundarnir einungis í 99. sæti. Þetta er að sjálfsögðu fullkomin vitleysa.

Samkvæmt nýjustu tölum okkar frá Freedom Report dot com á bloggið okkar mikinn hljómgrunn meðal lesenda Moggabloggsins og heimsækja það nánast jafn margir og blogg kommófemínistans Sóleyjar Tómasdóttur.

Moggabloggið vill þó með skoðanakúgun sinni þagga niður í okkur. Það mun ekki takast.

Varðhundar frelsisins krefjast þess að fá sinn réttmæta sess meðal valinna blogga og vinsælla svo að rödd frelsisins fái að óma! 


mbl.is Björgun úr vök æfð á Rauðavatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband