23.3.2007 | 11:21
Frelsi til að totta
Morgunblaðið gerir það að sérstöku umtalsefni sínu að rokkarinn geðþekki Tommy Lee sjúgi tær kven- og karlmanna. Varðhundar frelsisins þakka fyrir þessa ágætu fréttaskýringu. Hins vegar er með henni ýjað að því að mönnum sé ekki frjálst að totta tær. Vill Morgunblaðið koma á einhvers konar stofnun sem úthlutar leyfum til að totta tær? Á að miðstýra fólki þannig að því sé sagt hvað það á að totta og hvað ekki?
Auðvitað má Tommy totta. Um það snýst frelsið.
Tommy tottar tær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook