25.2.2007 | 14:21
Umhverfishippar
Varðhundar frelsisins hlæja að aumkunarverðri stefnu kommógrænna bolsjévíka í umhverfismálum. Ef fólk hefur hag af að lifa í heimi án mengunar, þá mengar það einfaldlega ekki. Þessu hafa varðhundarnir oft vakið máls á.
Verst er þó þegar sósíalistarnir á Mogganum og í Sjálfstæðisflokknum gleypa við umhverfisblaðrinu eins og ekkert sé. Í gær birtir Mogginn til dæmis grænan sjálfstæðisfálka á forsíðunni! Grænan! Ekki er öll vitleysan eins.
Nær væri fyrir flokkinn að fylgja fordæmi Illuga Gunnarssonar, forystumanns Sjálfstæðismanna í umhverfisumræðunni. Hann stendur að sjálfsögðu enn bjargfastur í þeirri trú að gróðurhúsaáhrifin séu ekki af mannavöldum, ólíkt því sem sumir meintir fagaðilar vilja meina. Illugi er helsta tromp sjálfstæðismanna í umhverfismálum og ber á vinstrimönnunum með sköruglegum málflutningi um meint gróðurhúsaáhrif.
Varðhundar frelsisins styðja Illuga í baráttunni. Áfram, Illugi, ekki láta sósíalgræningjana vaða yfir þig!
VG vill veita Jafnréttisstofu auknar heimildir til eftirlits með fyrirtækjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook