14.2.2007 | 15:50
Vinstrislagsíða amerískra fjölmiðla bersýnileg
Varðhundar frelsisins voru miklir aðdáendur Önnu Nichole Smith. Ógleymanleg túlkun hennar á Tanyu Peters í "Beint á ská 33 1/3" gleymist seint, sem og stormasamt líferni hennar á síðustu árum og áratug. Í ljósi þessa er hryggilegt að velta fyrir sér hvernig vinstrisinnaðir amerískir fjölmiðlar hafa látið fregnir af andláti hennar afskiptar að miklu leyti (að minnsta kosti í hlutfalli við mikilvægi) og kjósa að dvelja fremur við ótrúverðugar meiningar vinstrimanna um farsæla frelsun írösku þjóðarinnar, svo dæmi sé tekið.
Er erfitt að gera sér í hugarlund hvers vegna skelfilegur dauðdagi Önnu hefur ekki vakið meiri athygli vestanhafs, en óneitanlega læðist sá grunur að varðhundunum að öfundsýki vegna ríkidæmis hennar hafi haft áhrif á fréttaflutninginn. Það er enda alþekkt hjá fjölmiðlamönnum að þeir dragi taum sósíalískrar sameignarhugsjónar og virði að vettugi einstaklinga sem komist hafa til metorða á eigin verðleikum.
Svei sé hinni vinstrisinnuðu pressu í Ameríku!
Fréttastofur gagnrýndar fyrir slælega umfjöllun um andlát Önnu Nicole | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:52 | Facebook