13.2.2007 | 01:43
Ekki treysta sósíalistunum
Bloggari nokkur og yfirlýstur íhaldsmaður, Hjörtur Guðmundsson að nafni, hæddist hér á Moggablogginu að okkur Varðhundum frelsisins og reyndi að væna okkur um að sigla undir fölsku flaggi.
Við viljum benda á að manninum, sem segist vera frelsiselskandi, er ekki treystandi. Í bloggfærslu frá 28. desember segir hann eftirfarandi:
Hvers vegna fjárfestir ríkið ekki bara í þeim [ýmsum tækjum] sjálft? Er það ekki á ábyrgð þess að sjúkrahúsin okkar og lögreglan séu búin bezta búnaði sem völ er á á hverjum tíma?
Jahá! Þarna hvetur hann til aukinna ríkisútgjalda! Á bloggi hans skrifar hann auk þess daglegar færslur um Samfylkinguna og birtir myndir af forystukonu hennar! Er þessum manni treystandi? Eða er hann sósíalisti í sauðagæru?
Ekki er öll vitleysan eins.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook